clockhere
Flettingar í dag: 5
Gestir í dag: 5
Flettingar í gær: 21
Gestir í gær: 2
Samtals flettingar: 34560
Samtals gestir: 8791
Tölur uppfærðar: 19.3.2010 16:00:56

Vafraðu um


This be me

Nafn:

Ingibjörg Vigdísardóttir

MSN netfang:

inga_vi@hotmail.com

Afmælisdagur:

9. janúar

Heimilisfang:

Skagaströnd

Tenglar

Blogg

21.4.2008

Mánudags-vúhú...

Gott kvöld. 

Ég er að hugsa um að blogga.  Veit samt ekki alveg um akkúrat hvað, þar sem ég  er soldið rangeygð af þreytu núna.  Kannski ekki nema von þegar einn stuttur póker er tekinn á Ströndinni fram á sunnudagsnótt, og brunað svo í bæinn eftir tveggja tíma kríu kl. 5 og beint í vinnuna eeeeeeeeehehehehe   Ætlaði gjörsamlega úr kjálkaliðunum í dag, gapandi framan í mann og annan.  En það er bara hressandi...er það ekki Jóhanna?

Helgin á Skagaströnd var í alla staði mjög fín.  Sólin ætlaði okkur lifandi að steikja á pallinum og ekki fórst manni mikið úr verki   Elva hélt svaka fínt afmælispartý og hljómsveit er kennd er við innkaupapoka hélt uppi stuðinu á Kántrý.  Allavega áttum við ekki í vandræðum á dansgólfinu frekar en fyrri daginn.  Eins og vanalega tók ég slatta af myndum sem eins og vanalega rata ekki inná bloggið af þeirri vanalegu ástæðu að ég er ekki ennþá farin að læra á þetta nýja system.  Svo var bara grillað og spilað á sunnudeginum og allir voða ferskir

En nú nenni ég ei að skrifa hér meir þannig að ég bið bara að heilsa ykkur...........

Skrifað 21.4.2008 kl. 22:03 af

Bein slóð á færslu

3 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

14.4.2008

Hvar er gamla góða 123.is kerfið???

Jú komiði sæl  Hvað segiði þá???  Ég segi allt bara fínt.  Fyrir utan það að ég er að reyna að setja inn gasilljón myndir frá síðustu helgum en það er að ganga e-ð hægt þar sem þetta nýja kerfi er ekki alveg að funkera eftir mínu höfði. 

Fór sem sagt í afmælispartý til Sólu sætu á laugardaginn Er að vinna í því að koma inn myndum...endalaust tekið af myndum í þessu snilldarpartýi.  Ekkert smá gaman.  Dúndrandi tónlist og dans stiginn fram eftir nóttu.  E-ð örlítið var sullað í hvítvíni og bjór ásamt fleiri veigum.  Allt í hófi þó eins og góðu fólki sæmir.  Var það ekki annars???


Margt ber framtíðin í skauti sér og ekki fer alltaf allt samkvæmt áætlun.  Mín framtíðarplön hafa allavega breyst heilmikið bara á þessu ári.
Í byrjun þessa árs ætlaði ég mér að kaupa verkstæðið af Ingvari ásamt Bjarna tengdasyni hans.  Leyst okkur vel á þetta í byrjun og endalausar hugmyndir að endurbótum og betrun flugu hingað og þangað.  Ingvar líka bara ánægður að vita af þessu í okkar höndum í framtíðinni. 
Fór svo að ganga á ýmsu í fjölskyldu Ingvar og á meðan var verkstæðið og sölumál þess í smá lamasessi.  Gafst mér á meðan tími til að endurskoða hug minn. 
-Vildi ég festa mig í bænum í allavega 2 ár?
-Var hugurinn farinn að færast yfir heiðina
-Var ég tilbúin að steypa mér í skuldir í efnahagsblómanum sem blasti við og reka fyrirtæki sem byggist á þvi að nóg sé að gera í byggingariðnaðinum og að fólk sé með nóg af peningum milli handanna til að eyða í dýra sérsmíði???
-Var ég samt til í að sleppa þessu tækifæri???  Kaupa fyrirtæki sem ég hef unnið hjá í að verða 2 ár í águst, og ekki einu sinni búin með sveinsprófið?!?! 
Þegar ég hugsa þetta til enda þá liggur svarið í augum uppi:  Já.  Ég er búin að gera upp hug minn fyrir þónokkru síðan og ég er að fara að flytja norður til Jóhanns í byrjun sumars og ég get varla beðið.  Ég er nebblega soldið mikið skotin 

Tækifærin eru ekki einskorðuð við Reykjavíkina og ég get vel iðkað mína grein á Skagaströnd eða Blönduósi.  Ég kvíði samt heilmikið fyrir því að hætta á verkstæðinu og ég á eftir að sakna karlanna minna endalaust.  Þetta er búinn að vera alveg hreint ómetanlegur tími þarna hjá þeim.
Auðvitað er ég líka að fara frá heilmörgu hérna í bænum.  Ég á ekkert smá æðislega vini hérna sem ég á eftir að sjá minna af.  Fjölskylduna á ég líka eftir að hitta minna.  En ég verð nú samt ekki það langt í burtu og ekkert mál að halda sambandi.

Svo var ég líka búin að lofa að halda eitt gott kveðjupartý áður en ég fer og við það verður staðið.

Jamm jamm, þetta er sem sagt á döfinni hjá henni mér.  Sum ykkar vissuð þetta, önnur ykkar höfðu ekki hugmynd.  Gaman aðessu ekki satt.

Ég hef þetta þá ekki lengra að sinni.  Held að myndirnar verði að bíða aðeins þar sem ég þarf að skjótast aðeins út núna.

Túrúlú krúsúlú  :D

Skrifað 14.4.2008 kl. 19:20 af

Bein slóð á færslu

7 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

7.4.2008

Jú jú ég er á lífi

Hef bara ekki alveg verið að gefa mér tíma í þetta    Annars hefur hitt og þetta drifið á daga mína undanfarið.  Tók mig til og hitti slatta af fólkinu mínu í síðustu viku hérna í bænum.  Ekki gefist almennilegt færi á því þar sem ég á það til í að rjúka norður um helgar.  Sóla og KB komu til mín í mat og svo komu Solla og Baldur Blær í mat daginn eftir.  Hitti svo Írisi í einn Kringlurúnt á fimmtudaginn og Fanný seinna um kvöldið.  Ótrúlega gaman að hitta skemmtilegt fólk   Ætlaði að hitta fleiri en varð ekki úr.  Bæti vonandi úr því í þessari viku.  Svo kíkti ég norður um helgina með Jóhanni.  Jóhanna og Zoran komu líka og voru hjá Hrefnu yfir helgina.  Elduðum fullt af góðum mat á laugardagskvöldinu og kíktum svo í singstar til Elvu og svo í Kántrý.  Ekkert smá mikið stuð á okkur.  Ég er með fulla tölvu af nýjum myndum sem ég var að reyna að setja inná nýja kerfið hérna á 123.is  Búin að ná í nýja forritið og allt.  Ekkert að virka og ég er þannig að ég hef sama og enga þolinmæði gangvart svona tölvuapparötum þannig að ég gafst eiginlega bara upp í bili.  Ekkert alltof ánægt með þetta nýja kerfi.  Finnst gamla kerfið miklu aðgengilegra og betra en kannski er ég bara klaufabárður áetta. 
Hvað er eiginlega málið með þetta bambíbabúmbastef á skjá einum??? Og svo er komin ný hraðari útgáfa af þessu.  Langar engum nema mér að henda einhverju í sjónvarpið þegar þið heyrið þetta?
Úff held það sé best að ég komi mér út úr húsi og í ræktina til að hrista af mér bakpirringinn andsk andsk!!!!!!!
Hef eflaust helling meira að skrifa er bara ekki alveg að rifjast upp fyrir mér, frekar en annað þessa dagana...allt í graut bara   En það kemur bara næst ásamt vonandi myndunum sem ég var að rembast við að koma inn.  Endilega komið með vísbendingar ef þið haldið að ég sé að gera e-ð vitlaust

Kveð að sinni -Ingibjörg

Skrifað 7.4.2008 kl. 21:15 af

Bein slóð á færslu

2 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

5.4.2008

Jæja

Á maður kannski að fara að skella inn einni færslu????

Skrifað 5.4.2008 kl. 16:05 af

Bein slóð á færslu

2 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

Fara á upphafssíðu

clockhere