clockhere
Flettingar í dag: 4
Gestir í dag: 4
Flettingar í gær: 13
Gestir í gær: 5
Samtals flettingar: 34579
Samtals gestir: 8800
Tölur uppfærðar: 21.3.2010 18:43:20

Vafraðu um


This be me

Nafn:

Ingibjörg Vigdísardóttir

MSN netfang:

inga_vi@hotmail.com

Afmælisdagur:

9. janúar

Heimilisfang:

Skagaströnd

Tenglar

Blogg

21.5.2008

Jú góða kvöldið.

Tíminn er gjörsamlega að fljúga áfram þessa dagana.  2 dagar eftir á verkstæðinu og búin að tækla skriflega sveinsprófið   Svo er bara júróvisjónhelgi framundan og út að borða með skarthúspíunum mínum.  Hlakka ekkert smá til.  Langt síðan ég hef farið út að borða með þeim.  Verð sem sagt í bænum um helgina.  Svo fer megnið af næstu viku í verklega sveinsprófið.  Ágætlega undir það búin svei mér þá.  Ekkert að stressa mig fyrir þetta allavega.  Enda er best að fara þannig í próf.  Svo er ég bara frjáls eins og fuglinn eftir það og þá er stefnan tekinn norður og sjómannadagsglensoggrín   Svo bara brunað í bæinn eftir helgina og svo bara beint út í Skáleyjar í dúninn.  Sætu frænkurnar mínar ætla með mér í eggjaskyggningar.  Svo siglir eflaust  sjóarinn inn Breiðafjörðinn einn góðann veðurdag   Planið er svo að reyna að vera komin aftur á þurrt kringum 14. eða 15.  Útskriftarveisla og skírn eru e-ð að toga í mig.  Svo er bara að halda eitt gott útflutningspartý...já eða bara eftirpartý, eftirpartý...komiði með mér í eftirpartý, eftirpartý, eftirpartý...vííííí   Þið verðið bara að lofa mér að hafa nógu assgoti hátt þar sem ég á alveg eftir að hefna mín á liðinu hérna fyrir ofan sem er í þessum töluðu orðum að stappa í gólf og þenja raddbönd eins og enginn sé morgundagurinn.  Svo ætla ég bara að henda öllu draslinu mínu í kassabíl og flytja norður   Vá hvað er stutt í þetta!!!

Annars langar mig bara enn og aftur að óska elsku Ingu og Helga til hamingju með litlu fallegu prinsessuna sína sem kom í heiminn á þeim merkisdegi 18 maí.  Hún náði allavega alveg að bræða mig niður í gólfið þegar ég sá hana aðeins eins dags gömul við hliðina á mömmu sinni.  Og Helgi eins og skopparakringla á alsælu stoltastur af nýja meðlimi fjölskyldunnar

En jæja, things to do........Þannig að tvíkynhneigður

Skrifað 21.5.2008 kl. 21:27 af

Bein slóð á færslu

2 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

16.5.2008

Smá update

Aðeins að fara yfir ¨uppásíðkastið¨. 

Uuuu alveg nóg að gera hjá manni svo sem.  Er að fara á fund á morgun um sveinsprófið.  Bóklegt á mánudaginn og verklegt á mánudaginn eftir viku.  Alveg að verða búið.  Ein vika eftir á verkstæðinu og alveg að klára síðasta verkefnið þar.  Vá hvað það verður samt skrítið að hætta.  Góðir tímar að baki.  Og enn betri framundan.

Hitti semsagt Ingu og Helga í hambúrginzki heima hjá þeim í síðustu viku.  Inga svona fallega ólétt og ætti nú bara þá og þegar að eiga .  Gaman að hitta þau loksins.  Var orðið allt of langt síðan síðast.  Svo skellti ég mér bara norður síðustu helgi í bongóblíðu að sjálfsögðu.  Rólegheit fyrri part helgarinnar en svo var smá partý á sunnudeginum og spilerí.  Ferlega gaman hjá okkur.  Ekki margar myndir teknar þó.  Koma seinna bara.  Svo var bara skellt í smá bakkelsi á mánudeginum og familían hans Jóhanns kom í kaffi.  Myndarskapurinn alveg hreint að fara með mann hehe
Hrefna, Gummi og Strósa kíktu svo í afganga um kvöldið með tilheyrandi glensi og gríni eins og góðum hóp er einum lagið
Svo er ég bara búin að vera að vinna og vikan er að verða búin og það þarf þá ekki að spyrja að því hvað hún Ingibjörg verður um helgina aaaaahahahaha
Svo hitti ég hana Sólu mína í smá kringlurúnt í kvöld þar sem við rákumst á Jódísi og Guðbjörgu í góðum gír.  Kíktum svo aðeins á Hressó í einn kaldan. 

Já já svo hef ég í rauninni ekki neitt meira að röfla hér um...ekkert sem ég man allavega.  Gæti eflaust þvaðrað e-ð um þjóðmálin en er samt ekki alveg í þeim gírnum núna þannig að ég ætla bara að segja þetta gott í bili. 

Sveitabæ..................Ingibjörg

Skrifað 16.5.2008 kl. 0:03 af

Bein slóð á færslu

2 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

11.5.2008

Góðir þessir í AC/DC

Hæ.
Er ekkert að fara að pikka nein ósköp hérna inn...eiginlega bara ekki neitt.  Hef samt alveg e-ð að segja mismerkilegt þó.  Er bara örlítið hætt að nenna að blogga eins og svo margir eins og ég og vinkona mín vorum að ræða um daginn.  Er þetta kannski bara enn ein tískubólan sem líður yfir landann?  Maður spyr sig.
En kannski segi ég ykkur frá einhverju bara efir helgina ef eitthvað er eftir á minniskuppnum.  Maður, kona og hundur komin í heimsókn þannig að ég er farin.

Skrifað 11.5.2008 kl. 21:20 af

Bein slóð á færslu

3 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

1.5.2008

It´s alive!!!

Jah hvað haldiði nú....
Jú hún Ingibjörg er bara búin að setja inn alveg hreint heilan helling af myndum.  Og alveg eins og ég hélt þá var kerfið að klikka á mér en ekki ég á kerfinu!!!

Skellti sem sagt myndum úr afmælinu hennar Sólu inn sem eru algjör snilld! Tekið skal þó fram að þær eru ritskoðaðar og þóttu ekki allar mannsæmandi eðlilegu fólki.  Neeeei smágrín...en öllu gríni fylgir þó einhver alvara

Svo setti ég líka inn myndir frá páskunum og risapartýinu hjá Elvu.  Svo leynist líka singstarpartý þarna einhversstaðar og svo afmælið hjá Elvu líka.  Afmælin gætu hafa lent í afmælisflokknum þar sem ég er nú svo agalega skipulögð alltaf hreint jú nó.

Eins og sjá má þá var ég ekki alveg að nenna að skrifa við allar þessar myndir enda hefði ég verið að því til nónbils eins og menn sögðu í den og segja kannski enn. 

En nóg um myndablaður.  Finnst eins og ritstífla sé í aðsigi.... ég tók mér semsagt langa helgi síðast og dvaldi þá norðan heiða.  Náðum að sletta málningu útum allt en þó aðalega á 2 svefnherbergi.  Frekar róleg helgi með miklum gestagangi þó. 
Rákum þó aðeins nefið inn í kántrý á laugardagskvöldið af einskærri forvitni um umtöluðu hljómsveitina Kórdrengirnir.  Jú jú þeir voru einu sinni drengir en það er þó soldið síðan.  Þetta var samt bara svaka gaman og ýmislegt var mixað á barnum og mæli ég þá sérstaklega með einum grænum sem var skírður eftir mér og Jóhanni Már.


hmmm

Ágætis vinur minn sagði eitt sinn við mig í hálfkæringi, að ég væri með feita kálfa.  Kom það mér í koll um daginn þegar bensínfóturinn þyngdist eilítið framhjá hraðamyndavél einni á suðurleið eldsnemma morguns.  50.000 fátækari þar.  Og svo er maður að kvarta yfir bensínverðinu!!!  Bætti það þó örlítið úr skák hversu indæl luðruglukonugreyið í hólminum var þegar ég hringdi til að fá skýringar á þessu.  Berandi hag minn fyrir brjósti þegar hún spurði mig hvenær það væri hagkvæmast fyrir mig að fá reikninginn.  Hmmmm...kannski bara rétt fyrir jólin sirka.
 Svo þarf ég líka bara að borga 37.000 kjell ef ég borga nógu snemma.  Vúhúúú hef ekkert betra við peninginn að gera!!! 
Og hvað kennir þetta manni?
Jú, upp með sixpensarann og keyra á 90!
Já og vera þá bara fyrir öllum hinum þar sem meðalhraðinn á þjóðvegum landsins er um og vel yfir 110.
Eða þá bara leggja það á minnið hvað þessar blessuðu myndavélar eru og hægja þá á sér.
Uuuu eða þá bara gleyma því...

Á morgun er frídagur.  Er samt bara að njóta þessa að vera heima í kvöld sökum örlítillar þreytu.  Samt ekki alveg að meika þessi fimmtudagsfrí.  Slítur vikuna alveg í sundur. 
Ég ætla að vera í RVK um helgina svei mér þá.  Eitt stykki afmæli á laugardagskvöldinu.  Spurning um að taka eitt almennilegt 101 djamm.  Það hefur nú farið lítið fyrir því hjá henni mér undanfarið. hmmm...

Jæja ég ætla að fara að hætta þessu þvaðri og missa meðvitund uppí rúmi.  Ég bið að heilsa ykkur í bili og sé sum af ykkur um helgina.

Endilega kvittiði við myndirnar og færsluna líka ef þið endilega viljið :D

Tata -Ingibjörg



Skrifað 1.5.2008 kl. 0:41 af

Bein slóð á færslu

3 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

Fara á upphafssíðu

clockhere