clockhere
Flettingar í dag: 1
Gestir í dag: 1
Flettingar í gær: 21
Gestir í gær: 2
Samtals flettingar: 34556
Samtals gestir: 8787
Tölur uppfærðar: 19.3.2010 01:46:02

Vafraðu um


This be me

Nafn:

Ingibjörg Vigdísardóttir

MSN netfang:

inga_vi@hotmail.com

Afmælisdagur:

9. janúar

Heimilisfang:

Skagaströnd

Tenglar

Blogg

17.10.2008

Ótitlað

Eftir að ég fékk mér facebook, eins og flestir aðrir sem ég þekki nú orðið, þá hefur þessi bloggsíða mín algerlega legið niðri.  Þykir mér þó vænt um að enn virðist fólk þó athuga hvort hún Ingibjörg sé nokkuð búin að blogga e-ð nýtt.  Og viti menn, mánuði síðar gerðist e-ð. 

Ekki það að ég hafi e-ð mikið að segja frá.  Ég tók sem sagt þá ákvörðun að hætta á Stíganda þar sem það tók því varla að fara svona sjaldan í viku með kennslunni.  Skattkortið í skólanum og langar sem minnst að láta ríkið komast í launin mín.  Er samt að vinna alltof lítið og veit stundum ekkert hvað ég á af mér að gera.  Aðgerðarleysi gefur stundum af sér meira aðgerðarleysi til lengdar.  En það reddast nú kannski á næstu dögum. 

Ég fór reyndar í bæinn um daginn og hitti næstum allt fólkið mitt í afmæli hjá honum Atla.  Það var ekkert smá gaman að hitta alla og minnir mig bara á hvað ég sakna ykkar allra þarna í bænum.



Ég þyrfti eiginlega bara að koma oftar í bæinn til að hitta ykkur.  Ég hitti til dæmis Helga, Ingu og Fjólu Dís ekki neitt síðast og ég sakna þeirra ekkert smá emoticon

En jæja nóg af sakni sakn.  emoticon

Kreppu tal?  Svona umræða sem fólk er alveg að fá nóg af en snertir okkur öll svo mikið að einhvern veginn dregst maður alltaf í þá umræðu.  Ég er búin að reyna að fylgjast með í þessum málum frá upphafi.  Samt fást voðalega lítil svör og þá ósjálfrátt missir maður áhugann.  Vona bara að ráðamenn okkar nái einhvernveginn að bjarga okkur eins vel útúr þessu og hægt er.  Verst finnst mér þó bara svikamyllan í kringum þessa bankastjórnendur sem minnst vilja tjá sig um málið og vita held ég alveg uppá sig sökina.  En Íslendingar eru þó flestir búnir að lifa frekar hátt undanfarið þannig að okkur er í raun engin vorkunn að draga aðeins úr neyslunni.  Við höfum nú alveg séð það svartara held ég.  Eigum við svo ekki bara að fara að kenna rússnesku í grunnskólunum.  Bara.!

En jæja ég bulla hér ei meir!

Best að fara að gera e-ð.............og kíkja svo kannski í kántrý í kvöld emoticon

Túrlúlú Ingibjörg.










Skrifað 17.10.2008 kl. 12:41 af

Bein slóð á færslu

4 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

Fara á upphafssíðu

clockhere